Seldar vörur eru afgreiddar úr vöruafgreiðslu Ísleifs Jónssonar ehf, að Draghálsi 18, næsta virka dag eftir pöntun, með þeim fyrirvara að þær séu til á lager.
Séu pantaðar vörur uppseldar tímabundið mun þjónustufulltrúi hafa samband við fyrsta tækifæri með tölvupósti.
Sendingarkostnaður innanlands greiðist við móttöku samkvæmt verðskrá Póstsins ef eingöngu um smávöru er að ræða í sendingunni, en samkvæmt verðskrá vöruflutningafyrirtækis ef um stærri hluti er að ræða.
Sendingar sem viðskiptavinur sækir sjálfur eru afhentar í vöruafgreiðslu Ísleifs Jónssonar að Draghálsi 18 gegn framvísun persónuskilríkja eða skriflegu umboði kaupanda.
Greiðslur með kreditkortum eru alfarið meðhöndlaðar af vefþjónum Valitor, greiðslumiðlun Visa og eru engar kortaupplýsingar vistaðar á vefþjónum Ísleifs Jónssonar ehf.
Öll verð eru birt með fyrirvara um villur og myndbrengl.
Öll verð eru með virðisaukaskatti.
Varðandi vöruskil gilda almenn neytendalög um vöruskil í netverslun.
Lög og varnarþing: Varðandi viðskipti við okkur, sem og önnur atriði í samningsskilmálum þessum gilda íslensk lög. Rísi ágreiningur milli ÍJ ehf og viðskiptavinar skal mál vegna þess rekið fyrir íslenskum dómstólum.