Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri 2022

14 október, 2022

Fagkaup er Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri árið 2022 en að þessu sinni komast 1173 fyrirtæki á þennan lista Viðskiptablaðsins og Keldunnar að uppfylltum skilyrðum um tekjur, eiginfjárhlutfall og rekstrarafkomu.

Fyrirtækin uppfylla strangar kröfur:

- Afkoma þarf að hafa verið jákvæð.

- Tekjur þurfa að hafa verið umfram 40 milljónir króna.

- Eignir þurfa að hafa verið umfram 80 milljónir króna.

- Eiginfjárhlutfall þarf að hafa verið umfram 20%.

- Aðrir þættir metnir af Viðskiptablaðinu og Keldunni t.d. skil á ársreikningi og rekstrarform.

Við erum stolt af þessari viðurkenningu og hún hvetur okkur áfram í að gera enn betur.

Undir merkjum Fagkaupa eru Áltak, Ísleifur Jónsson, Johan Rönning, KH Vinnuföt, S. Guðjónsson, Sindri, Varma & vélaverk og Vatn & veitur.